Um síðuna
Þegar ég var krakki á Sogaveginum var Esjan útsýnið úr eldhúsglugganum. Ég sat þar oft löngum stundum og velti fyrir mér ýmsu sem mér var hugleikið, eins og hvað væri handan Esjunnar. Þetta voru vissulega mismerkilegar vangaveltur og flestar sprottnar fram af forvitni, en eina leiðin til að svala þessari forvitni var að leggja af stað í ferðalag og reyna að komast yfir Esjuna í leit að svari.
Tilgangur síðunnar er að þjóna svipuðu hlutverki og eldhúsglugginn gerði á sínum tíma, að vera vettvangur fyrir þessar hugleiðingar og annað sem mér er hugleikið hverju sinni.
Í gegnum tíðina hef ég stundum tekið upp á því að skrifa um það sem ég er að grúska í hverju sinni. Sumt af því er fróðlegt en annað eflaust ekki eins áhugavert. Hugmyndin er að nota þennan vettvang til að halda utan um þessa pistla mína og eins ef einhver annar skyldi hafa gaman af því að lesa þá.