Woodstock 1969 hefur lengi haft yfir sér goðsagnakenndan blæ. Hátíðin hét formlega Woodstock Music & Art Fair og fór fram dagana 15.-18. ágúst 1969 um 95 km frá bænum Woodstock. Yfirskriftin var „Three Days of Peace and Music“. Þarna komu fram allar helstu stjörnur þess tíma, Jimi Hendrix, Janis Joplin, Creedence Clearwater Revival og nánast allir sem skiptu máli, nema Bob Dylan.

Bob Dylan bjó á Woodstock svæðinu á þessum tíma, en þarna var hann leitandi eins og svo oft, en í þetta skiptið var það leitin að eðlilegu fjölskyldulífi og hafði hann reynt að draga sig úr sviðsljósinu. Það var vissulega vilji hjá skipuleggjendum að fá Dylan til að spila á hátíðinni, en til þess kom þó ekki. Heimildum ber ekki alveg saman um hvort hann fékk formlegt boð, en hann var einnig búinn að skuldbunda sig til að koma fram á ,,Isle of Wight” hátíðinni í Englandi sem var haldin um 2 vikum síðar, eða 31. ágúst 1969. Síðar var haft eftir Dylan að hann hefði ekki viljað vera hluti af Woodstock, hann var ekki hrifinn af „flower power“ menningunni og strax þetta sumar varð Woodstock svæðið að hálfgerðum miðpunkti hippamenningar. Hann upplifði því sífellt meira ónæði frá aðdáendum og öðru áreiti í nágrenni við heimili sitt. Hann þráði fyrst og fremst frið og ró og síðar þetta ár eða snemma árs 1970 flutti hann til að 94 MacDougal Street í Greenwich Willage, Manhattan, sem var frekar áhugaverð ákvörðun hjá manni sem vildi frið og ró. Woodstock 1969 fór því fram án Dylans.
Árið 1994 voru 25 ár liðin frá því að upprunalega hátíðin fór fram og af því tilefni var blásið til stærðarinnar hátíðar dagana 12.- 14. ágúst með því sniði sem er líkara því sem við þekkjum í dag. Þarna spiluðu meðal annars Metallica, Aerosmith og Green Day, ásamt mörgum öðrum. Á sunnudagskvöldinu steig svo sjálfur Bob Dylan á svið með hljómsveit, og strax eftir Red Hot Chili Peppers. Þarna var Bob Dylan þegar orðinn goðsögn og hafði sterka tengingu við Woodstock-svæðið og tímabilið sem tengdist upprunalegu hátíðinni. Dylan var því kynntur á svið með þeim orðum að honum hefði seinkað um 25 ár: „We waited twenty-five years to hear this. Ladies and gentlemen, Mr. Bob Dylan!“.
Dylan sagði ekki orð frekar en venjulega og var ekki mættur til að rifja sjálfan sig upp, þó hann tæki klassíska Dylan slagara. Þarna var hann ríflega fimmtugur og stóð á ákveðnum tímamótum með sína listsköpun. Síðasta hljóðversplata hans með nýju efni, ,,Under Red Sky” hafði ekki fengið neina sérstaka dóma og hann var enn á ný að ganga í gegnum breytingar, eftir listræna lægð um miðjan níunda áratuginn en virtist vera búinn að finna nýja neista sem kom með ,,Never Ending Tour” sem hófst 1988, en stefnan var enn óljós.
En þarna er Dylan mættur með 4 manna band, John Jackson á gítar, Bucky Baxter á pedal steel, Winston Watson á trommur og Tony Garnier á bassa. Þetta var ekki stór hljómsveit heldur í raun aðeins lítið og lipurt blúsband þar sem hryggjastykkið var Watson og Garnier sem límdu allt saman og héldu öllu uppi á meðan Jackson og Baxter bættu við litum og skrauti á meðan Dylan sjálfur stýrir ferðinni og nánast ýtir lögunum til og frá eftir því sem honum sýndist.
John Jackson var einstaklega lipur gítarleikari, hefðbundinn og hófstilltur og hélt sig meira í bakgrunni, en það gaf Dylan einstakt tækifæri til að stíga framar í sínum gítarleik. Það er einmitt eitt af því sem vekur sérstaklega athygli á Woodstock 1994 hvernig Dylan steig afdráttarlaust fram sem aðal lead-gítarleikarinn í bandinu. Hann var ekki aðeins að spila stakar fyllingar á milli sönglínanna, eins og oft áður, heldur tók hann löng og endurtekin gítarsóló sem urðu stór hluti af flutningnum.
Þetta var þó engin venjulegur lead gítar, spilamennskan var hrá, framsetning ójöfn og línurnar oft stuttar endurtekningar og jafnvel falskar á köflum. Þetta virkar kærulaust og nánast tilviljunarkennt, eins og Dylan væri að kasta fram hálfkláruðum hugmyndum án þess að vita nákvæmlega hvert þær myndu leiða. Þetta hefði vissulega aldrei gengið upp án Jackson, hann fyllti mjög smekklega inn í allt tómarúm sem myndaðist þegar Dylan lét skyndilega ókláraða línu hanga í loftinu. Jackson reyndi aldrei að taka yfir eða leiðrétta, heldur einfaldlega greip hugmyndirnar og svaraði þeim og leiddi þær varlega aftur inn í hljómsveitina. Þannig skapaðist í raun jafnvægi milli óreiðu og festu. Dylan var sífellt að ýta tónlistinni út á brúninni til þess eins að sjá hvað myndi gerast en bandið sá til þess ekkert myndi falla í sundur. Til þess þurftu allir meðlimir í bandinu að vera á tánum allan tímann, tilbúnir að bregðast við og þar af leiðandi ekkert svigrúm til þess að spila gömul lög af gömlum vana.
Opnunar lagið „Jokerman“ ofboðslega löng útgáfa og eitthvað næstum óþægilegt í gangi, svona eins og kaldur mótor, allt voða stíft og pínu skrítið. Samt ekki slæmur flutningur en spennan sem síðar byggðist upp var ekki kominn. Það var engu líkara en að allt bandið haldi aðeins aftur af sér og sé bíða hvert þeir eigi að fara, hvað sé að fara að gerast.
En strax í „Just Like a Woman“ fer eitthvað að gerast. Dylan byrjar strax í upphafi að móta laglínu á gítarinn á sinn óreglulega hátt og skilur eftir þagnið og opin rými sem bandið grípur og fyllir upp í. Þarna finnur maður að vélin er að hitna og þegar þeir byrja á „All Along the Watchtower“ er eins og tónleikarnir séu loksins byrjaðir fyrir alvöru. Þar þýtur Dylan nánast á undan hljómsveitinni og spýtir út úr sér orðunum, þjappar textanum þannig saman að tvær textalínur koma á fleygiferð í einni sönghendingu og gefur þar með ekki orðunum það hefðbundna pláss innan taktsins sem búast mætti við. Við þetta skapast strax kraftur og spenna, eins og bæði hljómsveitin og áhorfendur haldi niðri í sér andanum og bíði eftir því hvað gerist næst.
Þetta er sú list sem Dylan er meistari í að skapa, að færa tónlistina alveg fram á brúnina og sjá hvað gerist. Þetta heppnast auðvitað ekki alltaf en þarna small þetta. Svo stígur hann snöggt til baka og byrjar að frasera á gítarinn, stutt og síendurtekin stef sem virðast ekki stefna neitt ákveðið og hættur svo jafn snögglega og skilur bandið eftir í tómi, sem bandið stígur mjúklega inn í og fyllir rýmið.

Þetta getur auðvitað aldrei gengið upp nema hafa að band sem skilur hlutverkið og hefur yfir að ráða lipurð og færni til að bregðast við hinu óvænta. Bandið er því vakandi yfir hverri hreyfingu hjá Dylan og tilbúið að bregðast við. Á upptökunni sést vel hvernig Tony Garnier nánast snýr baki í áhorfendur til þess að hafa augun á Dylan og saman halda hann og Watson taktinum föstum á meðan Dylan ýmist teygir tónlistina í sundur eða þjappar henni saman.
Eftir að hafa byggt upp spennu með rafmögnuðum hljóðfærum er bandið orðið eins og vel smurð vél um miðbik tónleikana, þá snýst dæmið við og allt er brotið upp. Rafmagnsgítarinn er lagður til hliðar fyrir kassagítar og kontrabassa og fyrir valinu verða þrjú gömul lög, „Don‘t Think Twice“, „Masters of War“ og „It‘s all Over Now, Baby Blue“. Þetta er samt enginn nostalgía, þó þetta séu allt 60s lög er engin tilraun gerð til endurvekja gamla þjóðlaga söngvarann. Útsetningarnar eru hægar og opnar, án þess þó að vera tilraunakenndar eða stefnulausar, þær eru einfaldlega smekklegar og skemmtilegar og hljóma eins og þær eigi heima í samtímanum. Það er því ekki verið að endurflytja eitthvað gamalt heldur spila það sem hefur verið til lengi og hefur þróast og þroskast eins og Dylan sjálfan. Áhersla tónleikanna hefur því færst úr spennu og gítarsólóum yfir í röddina og textann. Og á þessu stóra á sviði skapast skyndilega stemning sem er náin og ljúf.
Þegar bandið tekur aftur upp rafmagnshljóðfærin er eins og allir séu búnir að finna sinn stað og þá heyrist skýrt þetta klassíska ,,Never Ending Tour” sánd frá þessum tíma, þar sem gítararnir kallast á eins og framlenging af rödd Dylans og Dylan ýtir lögunum í óvæntar áttir og bandið fylgir eins og einn maður.
Í fyrsta lagi eru þessir tónleikar einstaklega góð heimild um þennan tíma þegar Dylan var eins og staddur milli tveggja heima, var búinn að finna festu í ,,Never Ending Tour” en ekki ennþá búinn að finna út hvert hann var að stefna. Hann hafði verið í listrænni lægð, var kominn á miðjan aldur og það var ekkert endilega ljóst hvert hann ætlaði næst eða hvort hann ætti yfir höfuð að finna nýja leið áfram. Samt var eitthvað gangi, einhver gerjun og eitthvað að þróast.
Hann hafði verið að grúska í bandaríska þjóðlagaarfinum, gömlum blúsum og gömlum lögum sem hann gerði skil á plötunum ,,Good as I Been to You” og ,,World Gone Wrong”. Þar lágu rætur sem hann hafði svo sem heimsótt áður og lágu meðal annars til Skotlands og víðar og höfðu síðan ferðast milli landa og kynslóða og breyst í meðförum ótal flytjenda og öðlast sitt eigið líf. Þetta eru lög sem tilheyra ekki lengur einni manneskju eða einni réttri útgáfu, heldur halda þau áfram að þróast eftir því hver flytur þau hverju sinni.
Og það er í raun kjarninn í því sem Dylan er að gera á þessum árum og þessir tónleikar eru góð heimild um. Hann er kominn aftur í kjarnann, aðeins með einfalt blús band og sleppir tökunum á eigin lögum og eigin flutningi. Tekur lögin upp á arma sína eins og hvert annað þjóðlag sem ekki þarf að flytja á einhvern einn réttan hátt, heldur leyfir þeim að þróast, ekki aðeins frá kvöldi til kvölds heldur einnig innan hvers lags í raunflutningi. Úr þessu verður ekki aðeins ný útsetning á gömlu lagi heldur verður til eins og sjálfstætt framhald, eitthvað sem verður til í augnablikinu og hefði ekki orðið nákvæmlega eins kvöldið áður eða kvöldið eftir.
Þetta er þó alls ekki í fyrsta skipti sem Dylan tekur eigin lög í sundur og byggir þau upp á nýtt. Það hefur hann oft gert áður, og sést t.d. vel á ,,Rolling Thunder Revue” og síðar á gospel-tímabilinu, en það var gert undir allt öðrum formerkjum og á ólíkum forsendum. ,,Rolling Thunder Revue” var sirkus eða stór farandsýning með fjölda listamanna og mikilli umgjörð og var allt annað dæmi. Sama á við gospelárin þar sem byggt var í kringum bakraddir, kórinn, trúarhitann og ákveðinn boðskap sem var verið að koma til skila.
Þarna árið 1994 er þetta nánast allt horfið. Það enginn gospelkór, engin stór umgjörð. Bara hrátt en lipur blúsband og Dylan með fullan poka af lögum sem eiga bæði fortíð og framtíð og hann spilar á gítarinn, með einhverjar óljósar tilfinningar og hugmyndir sem hann er að spinna út í loftið til þess eins að sjá hvað gerist. Hann umbreytir lögunum eins og svo oft áður en er núna að leita í kjarnann, einfaldleikann og jafnvel ljótleikann, því hann er ekki alls ekki góður tæknilegur gítarleikari. Þetta snýst ekki lengur um leikræna umgjörð og eitthvað show, heldur tónlistina, augnablikið og þess sem gerist milli hans og hljómsveitarinnar í núinu.

Það er freistandi að tengja þetta við grúsk hans í gamla þjóðlaga- og blús arfinum þar sem ekkert var heilagt og bundið við eina útgáfu heldur þróaðist tónlistin mann frá manni og hver og einn flutti þau lög út frá eigin tíma og tilfinningum. Það er engu líkara en Dylan sé farinn meðhöndla eigin spilamennsku og lög á svipaðan hátt, fjarlægir umgjörðina, sleppir tökunum og leyfir þeim að þróast í flutningi.
Gítarleikurinn verður einnig hluti af þessari leit og það er eitt af því sem er einkennandi fyrir þessa tónleika, þarna stígur Dylan nánast fram sem aðal lead-gítarleikarinn í bandinu. Hann er þó enginn hefðbundinn gítarleikari, hann spilar nánast á gítarinn eins og munnhörpu. Tónum er raðað saman eins og framhaldi af röddinni og textanum og þeir dansa svo í kringum laglínuna sem hljómar oft hálf mótuð en liggur samt þarna í loftinu og við þekkjum hana, svona eins og þjóðlögin. Hann kastar tónum og stuttum frösum út í loftið, og bandið grípur og setur í samhengi og þannig leiðist tónlistin áfram.
Tónleikar Dylans verða því ekki eins og hver annar flutningur heldur meira eins og spuni þar sem tilfinningin í hverju andartaki fær að stýra ferðinni. Hverju lagi er ýtt út á brúnina og látið ráðast hvað gerist, treyst á innsæið hverju sinni. Hann veit eflaust ekki hvað hann er að gera eða þróa nákvæmlega, það er verið að þreifa sig áfram í leit að einhverri leið til að halda áfram með lagið, og í raun með ferilinn sjálfan. Þessi leit á síðar eftir að leiða af sér plötuna ,,Time Out of Mind” sem kom svo út 1997. Það er líka eitt af því sem gerir þessa tónleika svo áhugaverða að þeir eru lifandi heimild um þessa gerjun sem er að eiga sér stað hjá listamanninum, hann er einfaldlega staddur á milli þess sem var og þess sem verður. Þegar ,,Time Out of Mind” kom loks út er hann búinn að finna þennan tón sem hann leitaði að og þá hefst enn einu sinni nýr kafli hjá Dylan, en meira um það síðar.
Hér má sjá upptöku af tónleikum Bob Dylans frá tónlistarhátíðinni Woodstock 1994.