Ég var tólf ára sumarið 1994. Ég var í gifsi, ekki í fyrsta eða síðasta skipti, var handleggsbrotinn að þessu sinni og hafði því lítið fyrir stafni samanborið við önnur börn sem gátu leikið sér óheft. Ég var í gifsi frá fingurgómum upp að öxl og gat því ekki leikið mér á sama hátt og áður, en ég lét það ekki trufla mig of mikið og var fljótur að finna mér annað að gera. Ég var nefnilega ekkert venjulegt barn, eða allavega fæ ég ekki betur séð þegar ég horfi til baka.
Fyrir jólin 1993 kom út safnplatan Paradísarfuglinn, sem innihélt 20 lög af fyrri plötum Megasar. Hemmi bróðir átti þessa plötu og ég sat agndofa og hlustaði á þetta. Ég vissi alveg hver Megas var, þekkti auðvitað Fatlafól eins og öll önnur börn, þetta voru nefnilega aðrir tímar. Fyrir jólin 1988 hafði ég verið dreginn niður í bæ í jólagjafaleiðangur til að kaupa jólagjöf fyrir áður nefndan Hemma bróðir. Förinni var heitið í Grammið, sem þá var við Laugaveg, og þar sátu þeir kumpánar, Bubbi og Megas og árituðu nýju plötuna sína Bláa drauma. Það var ítrekað við mig hvað eftir annað að halda þessum kaupum leyndum þegar heim væri komið, en ég gat samt ekki á mér setið og sagðist hafa séð Megas og Bubba. Eftir þá frásögn var auðvelt að leggja saman tvo og tvo.

Ekki hafði ég nú mikinn áhuga á þessum mönnum á þessum tímapunkti, en fannst þetta samt merkilegt því þetta voru frægir menn og þeir gáfu mér eiginhandaráritun á blaðsnepil, sem ég er reyndar löngu búinn að týna. Það er nú ekki eins og þessi fundur okkar hafi staðið lengi en barnshjartað skynjaði vel að Megas sýndi þessu áhuga. Með brosi og vinsemd krotaði hann nafnið sitt á blað fyrir einhvern krakkaorm, á meðan Bubbi virkaði fjarlægur og áhugalaus um þennan krakka. Merkilegt hvað börnin skynja.
Það var svo sex árum síðar sem höndin fór í fatla og sex ár á þessum aldri eru eins og mannsaldur og margt sem breytist á svo löngum tíma. Ég vildi sem sagt eignast mitt eigið eintak af þessum safndisk, Paradísarfuglinn. Auðvitað var sól og blíða eins og í öllum minningum og einhvern veginn tókst mér að nurla saman pening, líklega með því að suða í mömmu og tók svo strætó niður í bæ. Ef maður vildi komast yfir tónlist á þessum árum kostaði það fyrirhöfn, það var ekkert YouTube eða Spotify. Maður gat staðið tímunum saman og skoðað titla og lesið aftan á albúm og drukkið það í sig án þess að fá að heyra neitt strax. Það gerði ég líka á leiðinni heim þar sem ég sat í strætó, ég las hvert einasta orð sem stóð á umslaginu og fletti textablaðinu. Eins og það er nú þægilegt að fletta upp hverju sem manni dettur á hug á andartaki í dag, þá sakna ég alltaf að fá að handleika plötuna eða diskinn, sjálft albúmið.
Þarna hófust semsagt kynni mín af Megasi fyrir alvöru og ég drakk þetta í mig, sírenurnar í Ragnheiður Biskupsdóttir, vælandi gítarinn í Paradísarfuglinum og eitt melódískasta og fallegasta gítarsóló sem ég hef heyrt í Spáðu í mig. Samkvæmt bloggsíðu Jens Guð var það Megas sjálfur sem skrifaði sólóið á nótur en Vignir Bergmann spilaði á gítarinn. Þetta sóló get ég hlustað á aftur og aftur. Svo voru það textarnir sem ég gat legið yfir og spáð og spekúlerað í, enda margir þeirra ekki alltaf auðskildir ungum sálum. Þegar kom svo að ég fór í fermingarfræðslu í Bústaðakirkju fannst mér það mætti alveg sleppa henni og spila bara fyrir okkur lagið Þótt þú gleymir guði. Mér fannst það í raun kjarna allt það sem var verið að segja og gott betur.
Þóttú í Kínahverfið inn
klaufskist í sorta nætur
og kínamaður með stóran sting
úr stáli hann gefi þér gætur
á elleftu stundu þá fær hann flog
og fellur að fótum sér
því þótt þú gleymir guði
þá gleymir guð ekki þér.
Með öðrum orðum, ef maður trúir á guð, þá reddast þetta allt þó maður gleymi sér og geri einhverja vitleysu, þá gleymir hann ekki okkur og sér til þess að allt fari vel. Þetta fannst mér fallegt. Þess vegna þótti mér vel við hæfi núna rúmum þrjátíu árum síðar, með fótinn í spelku, styðjandi mig hækjur eftir enn eina óheppnina að ég sæi brot úr jarðarför Megasar á Vísi og Óttar Guðmundsson læknir fór með minningarorð um frænda sinn og vin og endaði þau á tveimur síðustu línum úr þessum texta: Því þótt þú gleymir guði, þá gleymir guð ekki þér.

Allir listamenn verða fyrir innblæstri og sækja sín áhrif í aðra listamenn og það er vel þekkt. Þetta á líka við um þá sem njóta listar og pæla í list, hvort sem það er tónlist, bókmenntir eða önnur list, þá er gaman að velta fyrir sér hvar listamaðurinn fékk innblástur sinn. Ég man vel eftir útvarpsviðtali við Megas þar sem hann talaði um HKL og EP sem áhrifavalda í sköpun sinni. Ég fattaði ekki strax hvað hann var að tala um, en áttaði mig fljótlega á því að þarna var hann að vísa til þeirra félaga Halldórs Kiljans Laxness og Elvis Presley. Ég gat því ekki annað en tékkað á þeim og geri enn, þó þeir hafi ekki náð á mér sömu tökum og annar maður sem er sameiginlegur vinur minn og Megasar og ég átti eftir að kynnast síðar.
Þegar ég var í Iðnskólanum þvældist ég mikið um miðbæinn þegar ég átti auða stund, ýmist vegna eyðu stundatöflunni eða vegna þess að ég talda mig hafa mikilvægari erindum að sinna en að mæta í tíma. Oftar en ekki gerði ég mér þá ferð í Geisladiskabúð Valda við Vitastíg, sem var rekin í gömlum saggafullum bílskúr. Þarna grúskaði ég í alls konar efni, þó aðallega í grunge sem ég var með á heilanum þarna, og safnaði t.d. öllu sem ég fann með Nirvana. Af og til í þessum heimsóknum mínum í bílskúrinn til Valda rakst ég á Megas og yfirleitt yfirgnæfi súr reykingarlykt, blönduð svita og bjór, fúkkalyktina sem annars réði þarna ríkum. Ég var að safna geisladiskum, einhverjum meginstraumi, sem flestir voru búnir að eignast en ég var að kaupa nokkrum árum of seint á notaða markaðnum. Megas var ekkert að spá í þannig hégóma, hann sat úti í horna og rótaði kössum og blöðum og oftar en ekki eitthvað sem Valdi hélt til hliðar fyrir útvalda. Þarna var kallinn á höttunum eftir eftir blaðaúrklippum og örðu slíku sem tengdist Bob Dylan og var djúpt sokkinn. Hann er að pæla í Bob Dylan, hugsaði ég og skammaðist mín strax fyrir að vera að pæla í Kurt Koban þegar ég átti enn eftir að kynna mér Bob Dylan.
Hér er lagið Spáðu í mig af 7 tommu sem kom út árið 1975. Takið eftir dansandi bassanum sem hleypur í kringum laglínuna og kallast á við hrjúfa röddina. Svo kemur þetta magnaði gítarsóló sem er svo einfalt og melódískt að maður getur ekki hamið sig og flautað með.