Í sumar átti ég leið yfir Laxárdalsheiði, sem liggur á milli Hrútafjarðar og Hvammsfjarðar. Heiðin er aflíðandi og lítið að sjá nema heiðarlönd og votlendi með holtum og móum svo langt sem augað eygir. Þá varð mér hugsað til þess að einu sinni bjuggu amma og afi þarna á heiðinni í litlum bæ sem hét Kvíslasel.
Þegar ég ók yfir brúnna á Laxá tók ég skyndilega ákvörðun um að leggja bílnum og athuga hvort ég gæti fundið bæinn. Ég var ekki með nákvæma staðsetningu en fannst nafnið gefa mér næga vísbendingu. Kvíslasel hlaut að vísa til kvísla í á og þess vegna gekk ég upp með Laxá í von um finna bæinn þar sem áin myndi kvíslast.
Ég gekk fljótt fram á greinilegan slóða sem var orðinn grasi vaxinn og greinilega fáfarinn síðustu áratugi. Slóðinn lá ekki langt frá ánni og virtist hlykkjast áfram upp með ánni og ákvað ég því að fylgja honum. Eftir um 3 km göngu fór ég að sjá móta fyrir gömlu bæjarstæði í landslaginu, einmitt þar sem tvær kvíslar runnu og mættust í Laxá. Slóðinn lá áfram, yfir ána og upp að rústunum. Þegar ég stóð loks á hlaðinu velti ég fyrir mér hvernig fólk eins og amma og afi gátu búið á svona afskekktum stað langt uppi á heiði.
Laxárdalsheiði er víðáttumikil með votlendi og heiðarvötnum, stærst þeirra er Laxárvatn. Sunnan vatnaskila rennur Laxá í Dölum, með upptök sín úr lækjum og vötnum á vestanverði heiðinni, og til sjávar út í Hvammsfjörð. Að austanverðu er það Laxá í Hrútafirði, sem meðal annars tekur vatn úr Austurkvísl og Vesturkvísl. Kvíslarsel stendur þarna langt fram í heiðinni, um 6-7 km vestur af Borðeyri1, fram undir Sölvamannsgötum, rétt vestan við Vesturkvísl. Bæjarstæðið mun heita Miðhúskvíslarmelur og þar skammt frá er Jónshóll2, en þaðan er mjög víðsýnt um heiðina. Jónshóll er tengdur þjóðsögunni Sögubrot af Árna á Hlaðhamri, en þar í hólnum munu Jón og Guðrún, dóttir Árna, hafa falið sig eftir að Árni neitaði Jóni um hönd dóttur sinnar3.
Afi minn, Hermann Daníelsson, og amma mín, Sigurrós Guðmundsdóttir, voru síðustu ábúendur í Kvíslaseli. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig það kom til að þau fluttu þangað árið 1936. Matthías Matthíasson bjó þar á undan þeim, en hann var ókvæntur og bjó í Kvíslaseli frá 19274, en virðist þó ekki alltaf haft fasta búsetu þar5. Ýmist hafa dvalið þar einn, með ráðskonu og einnig sótt vinnu á Borðeyri6. Það má lesa milli línanna í gömlum skjölum7 að Matthías hafi líklega misst bæinn og hann verið seldur nauðungarsölu og afi þannig eignast bæinn. Þetta er þó ekki staðfest.

Amma og afi giftu sig heima á Melum 20. janúar 1934, séra Jón Guðnason gaf þau saman. Afi hefur sjálfur skrifað nöfnin þeirra í bók prestsins, það sést á skriftinni, og hefur afi skrifað sjálfan sig sem bónda á Melum og ömmu sem bústýru8. Það reyndar stangast aðeins á við aðrar heimildir því Jón Jósepsson var bóndi á Melum og afi þar sagður húsmaður9, en sjálfsagt hafði hann sínar skepnur og leit á sig sem bónda. Húsmaður var notað yfir einstaklinga sem leigðu hjá bændum, annað hvort á bæ þeirra eða út af fyrir sig og höfðu þá gjarnan afnot af jörð fyrir eigin skepnur10. Húsmennska var því einskonar millistig milli vinnufólks og bænda11.
Það var svo líklega á fardögum í byrjun júní 1936 sem þau fluttu í Kvíslasel. Með þeim var Þuríður Einarsdóttir 71 árs ásamt barnabarni sínu, Ingimari Einarssyni 10 ára, en þau voru frá frá Óspakstaðaseli12. Móðir Ingimars hafði dáið snemma árs 1933 og neyddist Einar faðir hans að bregði búi af þeim sökum vorið 193513. Af þessu hefur verið hagræði fyrir báða aðila.
Þarna var afi rétt að verða þrítugur og amma aðeins 21 árs, þau voru nýbúin að eignast sitt fyrsta barn og á leið upp í heiðina ásamt þeim Þuríði og Einari. Afi tilbúinn að taka við búrekstri af Matthíasi, sem virðist reyndar hafa búið hjá þeim áfram þó heimildir geti ekki alveg staðfest það. Jón Guðnason prestur á Prestbakka segir í bók sinni Strandamenn Æviskrár 1703-1953 að Matthías hafi dvalið í Kvíslaseli til 1936 eða lengur. Afi talaði síðar um að maður hefði búið hjá þeim en talaði reyndar um hann sem ,,gamla manninn”. Ef þetta var Matthías þá hefur hann verið 42 ára eða 12 árum eldri en afi, sem getur alveg verið mikill aldursmunur þegar maður er ungur og bjartsýnn.
Þegar ég stóð svo 90 árum síðar við bæjarrústirnar þar sem ekkert rauf kyrrðina nema spóinn á meðan hópur af kindum mjakaði sér fjær til að bíta í næði, fór ég hugsa um það hvernig ferðin upp á heiðina hafi verið. Maímánuður 1936 hafði verið hlýr og hagstæður en það kom hret í byrjun júní og gerði él alveg niður í byggð14. Þetta hefur því verið óvenjulegt vor þegar þau lögðu af stað í nýju heimkynnin.

Ég sé fyrir mér að þau hafi lagt snemma af stað, amma með sjö mánaða barn vafið inn að sér, afi teymandi hest með koffort og pinkla í klyfjum. Líklega mest allt sem þau áttu. Þau voru ung og fátæk og búslóðin varla verið stór. Líklega hafa þau fengið lánaða hesta til fararinnar, líklega gamla og rólega, sem höfðu þrætt þennan þessa vegi oft áður. Þuríður gamla hefur setið vafin sjölum á einum hestinum, meðan Matthías teymdi kúna og Ingimar litli hjálpaði til við kindurnar sem hafa eflaust ratað en viljað stýra sinni för sjálfar.
Þau hafa farið hægt yfir. Þetta var enginn akvegur, aðeins ruddur troðningur sem þurfti að þræða skref fyrir skref. Steinar og mold hafa kramist undan hófum hestanna og klyfjarnar skrölt til og frá á meðan kindurnar mjökuðust áfram undir árvökulu auga Ingimars, sem hóaði á þær ef þeir stoppuðu of lengi. Kýrin hefur sennilega verið treg og baulað annað slagið yfir heiðina, ekki hrifin af því að láta teyma sig út í þessa óvissu.
Kannski var skýjabakki yfir heiðinni, vindurinn farinn að kólna og él mætt þeim þegar ofar dró. Þá hefur amma dregið eitthvað betur utan um barnið og sett höfuðið undir sig. Afi hefur sett andlitið í élið og látið á engu bera enda búinn að leggja allt sitt undir. Þannig hafa þau mjakast áfram hægt og rólega. Svona sá ég hópinn fyrir mér mjakast áfram þar sem ég stóð á hlaðinu og hlustaði á spóann 90 árum seinna. Svo var þetta kannski einhvern veginn allt öðruvísi.
Það er samt trúlegt að amma og afi hafi verið bjartsýn þennan dag, á leiðinni í Kvíslasel til að gera sér þar heimili, skapa sér framtíð og betra líf. Heiðin bauð þó ekki upp á neitt fyrirhafnarlaust og sýndi það strax í upphafi, með kulda og hreti, og veitti þeim heldur kaldar móttökur þessa fyrstu daga júnímánaðar. Kuldi og harðindi voru þó ekki ný af nálinni fyrir þetta fólk.
Fyrstu mánuðir ársins 1936 höfðu einkennst af þrálátum norðan- og norðaustanáttum, með miklu frosti og snjóþyngslum með tilheyrandi harðindum15. Í byrjun mars segir frá því í blöðum að Hrútafjörður hafi verið ísilagður allt norður undir Kjörseyrartanga og var ísinn svo traustur að ekið var á bíl frá Borðeyri og yfir fjörðinn16. Ís lagði öllu jafna á fjörðinn en fáheyrt var að svo mikinn ís legði. Veturinn gat verið harður á þessum slóðum.
Þrátt fyrir þetta einkenndist sumarið að mestu af hlýindum og þá hefur verið gott hjá ömmu og afa í heiðinni, umkringd fuglasöng og því frelsi sem fylgir því að hefja búskap á eigin jörð. Tímann hefur þó þurft að nýta vel til að afla heyja og gera húsin klár fyrir komandi vetur.
Ég man eftir þeim segja frá fallegum sumardögum og þá sá maður fyrir sér mófuglana og grænt túnið. Þau sögðu þó fleiri sögur af vetri og harðindum, sem greinilega voru greypt í minnið, þegar gerðu vonsku veður eins og hendi væri veifað. Þannig var þeim minnisstætt einn góðviðrisdag, þegar amma hafði hengt út þvott og afi hleypt kindum á beit en farið svo inn til að fá sér hressingu. Þegar þeim var litið út um glugga var kominn svarta bylur. Þvotturinn horfinn út í veður og vind og marga klukkutíma tók að smala saman kindunum og koma þeim í skjól.
Það var líka þannig að haustið 1936 kom með hvelli. Aðfaranótt 16.september gerði eitt af mestu óveðrum tuttugustu aldarinnar. Það hafði farið að hvessa um kvöldið en um nóttina var komið fárviðri. Verst var veðrið á Snæfellsnesi og Vestfjörðum og meðal annars fauk hús í heilu lagi á haf út í Hnífsdal. Í Búðardal og Laxárdal fauk járn af húsum og útihús stórskemmdust. Í Hjarðarholti fuku 100 hestar heys. Í blöðunum dagana á eftir var mikið gert úr heytjóni sem bændur urðu fyrir víðsvegar um land17.
Þetta óveður hefur verið kallað Pourquoi Pas? óveðrið því þessa nótt fórust 56 sjómenn og þarf af 39 með franska rannsóknarskipinu Pourquoi Pas? sem strandaði þessi nótt við Mýrar í Borgarfirði18. Ekki veit ég fyrir víst hvernig þetta veður fór með Kvíslasel eða hvort foktjón varð á bænum, en mikið held ég að vistin hafi verið daufleg þessa nótt þegar vindurinn hamaðist á þekjunni og smeygði sér innum hverja glufu.
Í október riðu svo yfir miklir jarðskjálftar yfir norðurland, en ollu ekki tjóni og undir lok mánaðar tók við illviðrakafli með sjávarflóðum og hvassviðri. Það var því ekkert lát á mátti náttúrunnar og ekki tók betra við í nóvember þegar gerði fárviðri sem olli tjóni á húsum víða um land19. Þessir haustmánuðir hljóta því að hafa verið erfiðir í myrkri, vonskuveðri og einangrun. Eitthvað hlýtur þetta að hafa kostað ungu hjónin á heiðinni, hvort sem það olli tjónum á eignum eða ekki, þá hlýtur þetta að hafa valdið hugarangri og reynt að taugarnar. Hvernig sem viðraði þurfti að fara út í þetta veður til að sinna kindum og mjólka kúna. Nýja árið hefur gengið hljóðlega í garð og enn var langt í vorið, þó amma hafi nú örugglega bryddað upp á einhverju til hátíðarbrigða.
Janúar og febrúar einkenndust svo af gríðarlegum snjóþyngslum, hríðarveðrum og ísingu20 sem hefur gert alla útivinnu við skepnur mjög erfiða. Í mars var svo talað um þráviðri og fimbulfrost21. Þá hefur varla verið hægt að hleypa fénu út á beita til að drýgja heyforðann sem minnkaði með hverjum deginum.
Í slíku árferði hefur verið kalt í íslenskum bæjum og héla á gluggum. Bærinn var gamall en þó afi væri handlaginn hefur hann varla komist til þess að sinna miklu viðhaldi þarna um veturinn. Snjófarg og klaki hafa legið yfir bænum og jafnvel hefur þurft að moka snjó af þekjunni til að forða skemmdum.
Hver dagur hefur byrjað á sömu verkunum. Það þurfti að haldsa lífi í eldinum og moka frá svo hægt væri að komast í útihúsin. Þar beið kýrin eftir að vera mjólkuð og kindurnar eftir gjöfinni. Sennilega hafa þær jarmað af óþolinmæði þegar afi loksins birtist, hvítur af snjó og veðurbarinn eftir leiðina frá bænum. Þá átti enn eftir að sækja heyið, koma gjöfinni í jötuna, hreinsa undan fénu og ganga frá húsunum. Vatn var ekki sjálfsagður hlutur, ef lækurinn var ein klaka brynja hefur þurft þurft að þýða snjó bæði fyrir dýr og menn. Þetta þurfti svo að endurtaka aftur að kvöldi og engu skipti hvernig viðraði, þessum verkefnum var ekki hægt að fresta.
Inni hafa amma og Þuríður haldið heimilinu gangandi. Þær hafa spunnið, prjónað, gert við föt, skarað eldinn og tekið við mjólkinni þegar afi kom með hana inn. Úr henni var hægt að strokka smjör, nýta undanrennu og gera skyr eða graut. Brauð var hægt að baka ef mjöl var til, en varla hefur verið mikið um nýmeti yfir háveturinn.
Líklega hefur ófærð haldið þeim vikum saman einangruðum og fáir eða engir möguleikar verið til að komast til Borðeyrar eftir nauðsynjum. Heyið, mjölið, eldiviðurinn og aðrar nauðsynjar urðu að duga og hvert óveðrið á fætur öðru hefur þrengt enn frekar að.
Það hlýtur því að tekið á, bæði líkamlega og andlega, að vera lokuð uppi á heiði um dimman vetur sem engan endi virtist ætla að taka. Sama hvað gekk á þurfti að halda áfram, sjá um skepnur, halda hita í bænum og þreyja fram lífið dag eftir dag við þröngan kost.

Þegar loksins tók að vora eftir langa bið hljóta þau að hafa verið birtunni feginn. Apríl kom með hlýindi og fyrirheit um betri tíð en vorið reyndist svikull gestur. Í byrjun maí skall á með hríðarveðri og frosti22. Seinna þegar afi talaði um þennan tíma sagði hann að þetta hefði ekki verið neitt vit, jörðin verið harðbýl og óhagstæð til búskapar. Það fór því þannig að amma og afi yfirgáfu heiðarbýlið um vorið eftir aðeins eins árs búsetu. Bjartsýnin og væntingarnar, sem þau höfðu borið í brjósti árið áður, voru því orðnar að engu. Sporin hafa því verið tregablendin þegar þau fluttu niður af heiðinni og skyldu húsin eftir tóm. Síðan þá hefur enginn búið að Kvíslarseli nema spóinn að sumri til og vindurinn að vetri. Tíminn hefur svo orðið húsum og öðrum mannvirkjum að bráð.
Fyrst er getið um fasta búsetu á bænum árið 1855, sem hjáleigu frá Kjörseyri, en einnig eru heimildir af fólk frá Hlaðhamri sem dvaldi þar áður a.m.k. yfir sumartímann23. Bærinn var í upphafi nefndur Kvíslar en 1903 var farið að kalla hann Kvíslasel. Reyndar kemur nafnið Kvíslar aftur fyrir frá 1931-1934, þannig eitthvað hefur verið misjafnt hvað staðurinn var kallaður. Amma og afi töluðu aldrei um annað en Kvíslasel og þannig er bærinn merktur á landakortum í dag.
Nokkur atriði benda til þessa að Kvíslasel hafi upphaflega verið sel frá Kjörseyri. Í fyrsta lagi er það nafnið sjálft sem bendir til þess, eins er það staðsetning Kvíslasels, sem er staðsett í útjaðri jarðarinnar Kjörseyri, en þannig voru sel gjarnan staðsett. Þriðja vísbendingin er nafnið Kvíslar, en til eru dæmi þess að sel sé fellt úr bæjarnafni þegar það verður lögbýli.
Selbúskapur var stundaður allt fram á 19. öldina og var gjarnan upp til heiða þar sem finna mátti góð beitilönd, sem annars voru ekki nýtt yfir sumartímann. Þegar selbúskapur lagðist af stóðu eftir húsakostir sem vel var hægt að nýta. Þannig urðu mörg sel að hjáleigum og síðar að lögbýlum. Allt þetta passar mjög vel við Kvíslasel og rímar við orð Georgs Jóns Jónssonar frá Kjörseyri sem telur að þarna hafi í upphafi verið sel24.
Hins vegar er haft eftir Jóni Kristjánssyni, sem bjó á Kjörseyri frá 1916 til 1968 og faðir hans bjó það áður, að ekki sé vitað til þess að þar hafi verið sel25. Þá má spyrja hvers vegna fólk frá Hlaðhamri fór að hafa þar sumardvöl fyrir 1855. Við það kemst maður ekki hjá því að hugsa til sögunnar af Árna á Hlaðhamri og dóttur hans og tengdasonar sem settust að við Jónshól, skammt því hvar Kvíslasel stendur.
Eftir að bærinn hafði verið hjáleiga frá Kjörseyri í nokkur ár var það árið 1861 sem fyrsti bóndinn hefur eiginlegan búskap í Kvíslum og varð bærinn þá gerður að lögbýli. Það voru hjónin Helgi Jónsson og Jóhanna Jóhannesdóttir sem hafa þá keypt jörðina og búið þar næstu 13 árin26. Á þeim tíma sem Helgi Jónsson var byggja upp sinn búskap á Kvíslum virðist búið hafa gefið vel af sér og verið góð jörð. Árið 1872 hefur Helgi verið gildur miðlungs bóndi með 1 kú, 30 mjólkandi ær, fimmtán geldar, tuttugu gemlinga og fimm hross27. Hann þurfti því að greiða 140 fiska í útsvar og var sjöundi hæsti útsvarsgreiðandinn í Bæjarhreppi það árið28.
Af þessu sést að hægt var að lifa góðu lífi á þessu heiðarbýli en á þeim tíma sem Helgi bjó þar hefur verið stundaður sjálfsþurftarbúskapar. Slíkur búskapur fór svo að fjara út þegar líða tók á 20. öldina og bændur fóru að selja afurðir sínar. Þó jörðin hafa alltaf verið í einangrun var þarna góður úthagi, og eflaust fiskur í vötnum. Kröfur nútímans lögðu hinsvegar minni kröfur á úthaga og ræktun, samgöngur og síðar var vélvæðing að úrslitaþætti.
Í fasteignamati árið 1916 var jörðin Kvíslar metin á samtals 2.648,5 kr sem þýddi að heildarverðmæti jarðarinnar var undir meðallagi samanborið við aðrar jarðir í Bæjarhreppi29. Matinu var skipt upp í 3 þætti, landverðmæti (2.100 kr), húsakostur (500 kr) og mannvirki og ræktun (48,5kr). Möguleg afnot voru sögð 1 kýr og 170 fjár30. Verðmat landsins sjálfs var því nokkuð gott og var talsvert hærra er margra smærri býla í hreppnum, sem segir að Kvíslar hafi þótt nokkuð góð jörð til fjárbúskapar. Hinsvegar var húsakostur metinn í lægra lagi og mannvirki og ræktun var með því lakasta í hreppnum. Þetta segir að litlar sem engar landbætur eða túnrækt hafi verið komin á skrið árið 1916.

Það má því segja að þetta hafi verið jörð með mikla möguleika en það þurfti að spýta í lófana til halda í við nútímakröfur. Þetta sést einnig vel á uppdrætti af túnkorti frá 1917, þar sést að túnið var aðeins um 2,4 hektarar og 5/6 af því var slétt31. Þessi stærð af túni er á við þrjá og hálfan fótboltavöll og miðað við þessa stærð hefur þurft að afla töluvert heyfangs utan túnsins. Annað hvort með beit í haga, sem var bæði áhættusamt og ótryggt yfir veturinn sérstaklega ef veður var með sama hætti og 1936-37. Hinn kosturinn hefur verð að treysta á aðkeypt hey og fóður en þá þurftu að vera tryggar samgöngur og því var ekki að heilsa. Þetta hefur því verið þröng staða.
Túnrækt var í miklum vexti á árunum 1920 til 1948 og jókst heildarstærð túna úr 22.031 hekturum í 40.850 hektara. Sérstaklega mikil aukning var á árunum 1931 til 1935 þegar heildaraukning var 1.289 hektarar32. Túnin í Kvíslaseli virðast hinsvegar hafa staðið í stað, því ef nýjar loftmyndir eru skoðaðar í dag er ekki að sjá neinar breytingar frá uppdrættinum 1917. Það má því kannski segja að þrátt fyrir góða landkosti voru skilyrði til búskapar barns síns tíma þegar amma og afi eignuðust jörðina 1936.
Eins og komið hefur fram eignaðist Matthías jörðina 1927 og bjó þar meira og minna einn með einhverjum hléum. Það má því draga af því ályktum að hann hafi stundað þar hálfgerðan sjálfsþurftarbúskap og lítil tök haft á ræktun eða uppbyggingu á húsakosti eins síns liðs. Það bendir því allt til þess að lítil framþróun hafi verið í Kvíslaseli eftir 1916.

Heimskreppan hófst með falli verðbréfamarkaðarins á Wallstreet 1929 og áhrifa hennar fór að gæta á Íslandi haustið 1930. Stærsti skellurinn kom svo 1932 þegar verð á útflutningsvörum hafði lækkað um 43% frá 192933. Bændur hafa því fengið töluvert minna fyrir sínar vörur á þessum árum og lífsbaráttan verið hörð.
Þrátt fyrir erfiða tíma voru mikil umskipti í íslensku bændasamfélagi og timburhús og steinsteyptir bæir voru að taka við af gömlum torfbæjum. Árið 1930 voru timburhús orðin um 27,5% af íbúðarhúsum á íslenskum sveitabæjum og steinhús um 16%34. Þessi umskipti voru hluti af lengri þróun og um aldamótin 1900 mátti víða sjá torfbæi sem voru farnir að taka á sig nýtt byggingarlag35. Torfveggir og grjóthleðslur voru enn ríkjandi, en timbur var smám saman tekið í notkun þannig að stafn og framhlið voru úr timbri og bæirnir þiljaðir að innan. Þetta byggingarlag sést víða í bók Daniels Bruun, Íslenskt þjóðlíf í þúsund ár, en hann ferðaðist víða um landið á árunum kringum aldarmótin 1900 og skrásetti það sem hann sá. Þetta byggingarlag sést einmitt á þeirri einu mynd sem til er, svo vitað sé, af Kvíslaseli en hún var tekin árið 1940 þegar bærinn hafði verið í eyði í tæp 3 ár. Hún ber einmitt merki þessa umbreytingartímabils, þar sem eldri torfbæir voru farnir að taka á sig nútímalegra útlit.
Á myndinni sést timburgafl sem snýr á móti suðri og fyrir miðri mynd má sjá bæjardyrnar sem standa opnar og hafa legið inn í nýrri hluta bæjarins. Hann hefur verið að mestu smíðaður úr timbri en sambyggður eldri torfbæ sem líklega gegndi enn sínu hlutverki. Þakið var klætt grasi og mynda þannig nýrri og eldri hluti bæjarins samfellda heild, auk þess sem torfið hefur veitt góða einangrun gegn íslensku veðurfari. Fjær á myndinni sést skemma og útihús sem hafa verið þar fyrir í aftan í um 200m fjarlægð.

Í suðurhluta hússins hefur líklega verið helsti dvalarstaður heimilisins yfir daginn og þar hefur fjölskyldan getað matast og tekið á móti gestum. Þar hefur verið bjartara og rúmbetra en í eldri hluta bæjarins, á meðan gamla baðstofan hefur jafnvel áfram gengt hlutverki sínu sem svefn- og vinnurými. Þó að húsið hafi verið gamalt bar það merki um nýja tíma. Undir suðurhlutanum var hlaðinn kjallari sem líklega hefur verið notaður sem búr eða köld geymsla fyrir matvæli og aðrar nauðsynjar. Slík geymsla hefur verið mikilvæg á afskekktum bæ þar sem ekki var hægt að treysta á reglulegar samgöngur og birgðir þurftu að endast langa vetrarmánuði.
Úr suðurglugganum hefur ekki aðeins sést yfir víðáttur heiðarinnar heldur einnig í átt að Sölvamannagötum, sem var gömul alfaraleið yfir Laxárdalsheiði. Leiðin lá upp frá Fjarðarhorni í botni Hrútafjarðar, vestur fyrir Kvíslasel og þaðan fram hjá Guðnýjarsteinum áður en hún lá áfram niður í Hvammsfjörð. Hún var hluti af lengri leið sem kölluð var Hálsagötur og lá áfram til Gilsfjarðar. Sagt er að Hólabiskup og fleiri hafi farið þessa leið til að tína söl í Saurbæjarfjöru, og dregur leiðin nafn sitt af slíkum ferðum36.
Ef ferðinni var heitið yfir Laxárdalsheiði til eða frá botni Hrútafjarðar má gera ráð fyrir því að sést hafi til mannaferða út um suðurgluggann í Kvíslaseli. Sölvamannagötur voru þekkt leið og gatan vel fær hestum37 og því líklegt að leiðin hafi verið farin á þeim tíma sem Kvíslasel var í byggð, þó líklega hafi dregið úr þeim ferðum með tímanum. Kvíslasel stóð nánast mitt á milli á Hrjútafjarðar og Sólheima, efsta bæ í Laxárdal, og hefur líklega verið mikils virði fyrir ferðalang á dimmum degi að sjá ljós í glugga á miðri heiðinni. Til er saga af Einari Þorleifssyni hirðstjóra sem reið vestur Sölvamannagötur á 15.öld við þrettánda mann. Þeir lentu í vonskuveðri og hríðarbyl og snéru aftur til Hrútafjarðar og komu ýmist ríðandi dauðir í hlað, frosnir við hesta sína, eða dóu úr kulda þegar heim var komið38.

Þéttbýli í Búðardal fór ekki að myndast fyrr en upp úr aldamótunum 1900 og fyrsta verslunarhúsið reis ekki þar fyrr en 1899, því þurftu bændur í Laxárdal að reiða sig á verslun á Borðeyri og Stykkishólmi39. Verslun hafði lengi verið stunduð á Borðeyri og höfðu Hansakaupmenn og englendingar vanið komur sínar þangað áður en danska konungsveldið setti á einokunarverslun40. Þegar Borðeyri var svo gerð að löggildum verslunarstað 1846, hófst lausa verslun þar skömmu síðar og sigldu þá kaupmenn þangað á hverju vori. Árið 1880 hófst svo útflutningur á íslensku sauðfé og varð Borðeyri ein helsta útflutningshöfn landsins.
Af þessum sökum hafa menn átt erindi yfir Laxárdalsheiði og til Borðeyrar að sækja verslun og reka sauðfé til útflutnings. Í stjórnartíðindum 1878 birtist auglýsing þar sem tilgreint er að vegurinn yfir Laxárdalsheiði eigi að verða sýsluvegur41 og mikið er skrifað um vegagerð á heiðinni um aldamótin 1900. Vegurinn yfir Laxárdalsheiði niður til Borðeyrar hefur legið nokkuð norðan við Kvíslasel og gerir enn. Þegar staðið er í dag á bæjarhellunni má sjá til umferðar yfir heiðina þó erfitt sé að greina tóftir bæjarins frá veginum. Þegar bærinn var í byggð hefur hins vegar sést vel heim að bænum og má vel ímynda sér að fólkið í Kvíslaseli hafi séð dalamenn reka sauðfé sitt yfir heiðina eða fara þar um í öðrum erindum í kaupstað. Kvíslasel hefur því verið mun nær alfaraleið í þá daga en okkur kann að þykja í dag. Slíkar ferðir hafa að mestu verið háðar árstíðarbundnum erindum og varla mikið sést til mannaferða yfir háveturinn, þegar myrkrið, kuldinn og einangrunin voru hvað mest.
Eftir þetta fluttu amma og afi að Prestbakka og voru þar í húsmennsku hjá séra Jóni Guðnasyni. Draumurinn um eigin búskap var þó ekki kulnaður og áttu þau eftir að gera aðra tilraun vestur í dölum áður en þau fluttu suður til Reykjavíkur 1947.
Heimildir:
- Kjartan Ólafsson, ,,Eyri”Vinnuhandrit að Firðir og fólk 900-1900, varðveitt af Safnahúsinu á Ísafirði (safnis.is), bls 47-48 ↩︎
- Georg Jón Jónsson, ,,Söguferð um Bæjarhrepp”, Strandpósturinn 46.árg, Ársrit 2014, bls 58 ↩︎
- Jóns Árnasonar, ,,Sögubrot af Árna á Hlaðhamri”, Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri, 1864, bindi II, bls 273-276 ↩︎
- Sóknarmannatal Prestbakka 1927-1935 Þjóðskalasafn Íslands ↩︎
- Jón Guðnason, Strandamenn Æviskrár 1703-1953, 1955, bls 60 ↩︎
- Sóknarmannatal Prestbakka 1927-1935 Þjóðskalasafn Íslands ↩︎
- Sýslumaðurinn í Strandasýslu 1935; Uppboð, Þjóðskjalasafn Íslands ↩︎
- Prestþjónustubók 1899-1937, Þjóðskjalasafn Íslands ↩︎
- Sóknarmannatal Prestbakka 1927-1935 Þjóðskalasafn Íslands ↩︎
- Einar Laxness, Pétur Hrafn Árnason, Íslandssaga A-Ö, 1995 ↩︎
- Einar Laxness, Pétur Hrafn Árnason, Íslandssaga A-Ö, 1995 ↩︎
- Minning: Halla Inga Einarsdóttir, Morgunblaðið 6.júlí 2009, tímarit.is ↩︎
- Minning: Halla Inga Einarsdóttir, Morgunblaðið 6.júlí 2009, tímarit.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1936, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1936, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1936, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1936, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1936, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1936, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1937, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1937, taj.blog.is ↩︎
- Trausti Jónsson, Hugsað til ársins 1937, taj.blog.is ↩︎
- Jón Guðnason, Strandamenn Æviskrár 1703-1953, 1955, bls 57 ↩︎
- Georg Jón Jónsson, ,,Söguferð um Bæjarhrepp”, Strandpósturinn 46.árg, Ársrit 2014, bls 58 ↩︎
- Guðrún S. Magnúsdóttir, Kvíslasel. Örnefnaskrá, 1977 ↩︎
- Jón Guðnason, Strandamenn Æviskrár 1703-1953, 1955, bls 58 ↩︎
- Kjartan Ólafsson, ,,Eyri”Vinnuhandrit að Firðir og fólk 900-1900, varðveitt af Safnahúsinu á Ísafirði (safnis.is), bls 48-49 ↩︎
- Kjartan Ólafsson, ,,Eyri”Vinnuhandrit að Firðir og fólk 900-1900, varðveitt af Safnahúsinu á Ísafirði (safnis.is), bls 48-49 ↩︎
- Jarðabók yfirfasteignamatsnefndar Strandasýslu 1916, Þjóðskalasafn Íslands ↩︎
- Jarðabók yfirfasteignamatsnefndar Strandasýslu 1916, Þjóðskalasafn Íslands ↩︎
- Túnkort 1917, Þjóðskjalasafn Íslands. ↩︎
- Pálmi Einarsson, ,,Framkvæmdir í Sveitum” Búfræðingurinn XVI árangur, 1951, bls 85 ↩︎
- Guðmundur Jónsson, „Hvaða áhrif hafði kreppan mikla á Ísland og Íslendinga?“, Vísindavefurinn, 18. janúar 2024 ↩︎
- Pálmi Einarsson, ,,Framkvæmdir í Sveitum” Búfræðingurinn XVI árangur, 1951, bls 91 ↩︎
- Daniel Bruun, Íslenskt þjóðlíf í þúsund ár, 1987 ↩︎
- Árni Björnsson, Í dali vestur, Árbók Ferðafélags Íslands, 2011 ↩︎
- Guðrún S. Magnúsdóttir (1977): Kvíslasel. Örnefnaskrá. ↩︎
- Árni Björnsson, Í dali vestur, Árbók Ferðafélags Íslands, 2011 ↩︎
- Árni Björnsson, Í dali vestur, Árbók Ferðafélags Íslands, 2011 ↩︎
- Georg Jón Jónsson, ,,Borðeyri”i, Strandpósturinn 46.árg, 2013, bls 35-65 ↩︎
- Auglýsing um sýsluvegi í vesturamtinu, Stjórnartíðindi, 1878, bls 138 ↩︎