Hugleiðingar um hitt og þetta

Moli: Most of The Time

Það var snemma árs 1989 sem þrír menn settust niður í gömlu einbýlishúsi í New Orleans. Þetta voru upptökustjórinn Daniel Lanois, Mark Howard upptökumaður og Bob Dylan. Til stóð að hljóðrita næstu hljómplötu Dylans, Oh Mercy.

Hljómheimur plötunnar var þykkur, dimmur og rakur, með miklu delay og reverb. En til þess þurfti fyrst að vita hvaða lög þeir ætluðu að vinna með. Dylan var mættur með gítar, munnhörpu og handskrifaða texta í stílabók. Mark stillti upp hljóðnemum á stofugólfinu og Daniel ýtti á rec þegar Dylan settist niður með gítarinn.

Úr varð ein stórkostlegasta upptaka sem ég hef heyrt. Það er eins og Dylan sé í sama rými og maður sjálfur. Lagið heitir ,,Most of the Time“ og fjallar um mann sem er að mestu búinn að jafna sig eftir sambandsslit. Það má hins vegar segja að Dylan hafi ekki bara spilað lagið, hann lifði lagið þarna á stofugólfinu. Röddin var skýr og stjórnuð en full af trega og maður heyrir kvíðann í munnhörpunni. Textinn segir að hann hafi það bara fínt – most of the time – en það heyrist á örvæntingunni í gítarnum að það er ekki satt, hann er ennþá brotinn.

Úr varð stórkostleg plata sem líkist í raun lítið þessari upptöku, þó maður heyri vel rýmið og upptökutæknin sé sú sama. Það bætist bara í hljóðheiminn og Daniel breiðir þar teppi yfir mesta kvíðann.

Fleiri skrif

Allir pistlar →

Allir molar →