Hugleiðingar um hitt og þetta

Moli: Daniel Lanois

Hvað eiga plöturnar The Joshua Tree með U2, Yellow Moon með The Neville Brothers og Oh Mercy með Bob Dylan sameiginlegt?

Ef hlustað er á lög eins og Where the Streets Have No Name með U2, A Change Is Gonna Come með Neville Brothers og Ring Them Bells með Bob Dylan, má heyra skýr tengsl í hljómi og áferð. Öll þrjú lögin hafa stóran, djúpan og víðan hljóðheim sem gerir tónlistina ekki bara lifandi heldur skynjar maður rýmið og andrúmsloftið. Eitthvað sem getur verið erfitt að fanga. Þetta eru allt handbragð upptökustjórans Daniel Lanois.

Daniel Lanois fannst hefðbundin hljóðver setja tónlistarfólki of miklar skorður og sneri því dæminu við. Í stað þess að tónlistarmenn þyrftu að laga sig að hljóðverinu, lagaði hann upptökuferlið að tónlistarfólkinu. Hann leit ekki á rýmið sem aðeins umgjörð heldur sem hluta af hljóðheiminum og upplifuninni og skapaði þannig andrúmsloft sem hægt var að fanga. Hann setti upptökumanninn og flytjandann í sama herbergið til að fella niður múrinn sem myndast þegar hljóðmaðurinn situr bak við glervegg. Rýmið var síðan ekki aðeins valið með tilliti til hljómburðar, heldur einnig með það í huga að hafa áhrif á upplifun og skapa rétt andrúmsloft.

Í stað þess að loka U2 inni í erlendu hljóðveri hélt hann þeim á þeirra heimaslóðum. Upptökur fóru m.a. fram í gömlu írsku húsi þar sem tekið var upp í stofunni og stigagangar notaðir til að framkalla náttúrulegt reverb og skapa þannig þennan stóra, víða hljóm sem einkennir plötuna.

Yellow Moon var tekin upp í fjölbýlishúsi í New Orleans, í sama hverfi og Neville bræður bjuggu í. Þannig tókst þeim að fanga stemninguna nánast beint af götunni, sem var þeirra náttúrulega umhverfi. Aftur var notaður stigagangur til að ná fram reverbi þegar söngur Aarons var tekinn upp.

Loks var tekið á leigu einbýlishús í New Orleans rétt við Mississippi ána fyrir Oh Mercy. Þar kom Dylan sér fyrir, allt var tekið upp á stofugólfinu og alltaf á næturnar, til að skapa dulúð og fanga rökkrið, hitann og rakann sem einkennir New Orleans.

Með þessu tókst Daniel Lanois ekki aðeins að taka upp þrjár geggjaðar plötur heldur einnig að fanga ákveðna stemningu og flétta hana inn í þann hljóðheim sem hann hafði skapað.

Where the Streets Have No Name:

A Change Is Gonna Come:

Ring them Bells:

Fleiri skrif

Allir pistlar →

Allir molar →