Sumt skilur maður ekki fyrr en maður sér það í samhengi við það sem á undan kom, en þannig var það með mig og Time Out of Mind. Ég byrjaði sem unglingur að hlusta á Bob Dylan og sökkti mér í gömlu plöturnar frá 1962 til 1966 og fannst þær stórkostlegar. Á þessum tíma vissi ég lítið um manninn sjálfan eða hvernig ferill hans hafði þróast. Ég varð því mjög spenntur þegar Time Out of Mind kom út árið 1997 en gagnrýnendur lofuðu hana í hástert og töluðu um bestu plötu Dylans síðan á sjötta áratugnum. Þegar ég kom loks höndum yfir plötuna varð ég hins vegar fyrir miklum vonbrigðum. Þetta var ekkert líkt því sem ég átti von á og ég sá litla tengingu við þetta gamla góða.
Síðan liðu árin og ég fór smám saman að átta mig á því að það tekur tíma að skilja suma hluti. Þannig finnst mér Bob Dylan vera eins og Íslendingasögurnar, maður þarf að taka út ákveðinn þroska til að öðlast fullan skilning. Ég fór því hægt og rólega að leggja plöturnar frá sjötta áratugnum til hliðar og fór að hlusta á plötur frá þeim sjöunda og þá opnaðist fyrir mér nýr heimur. Ég fór að lesa mér til um manninn og reyna að átta mig á ýmsu sem mér fannst vanta svör við.
Ég var sjálfur bara krakki á áttunda áratugnum og fannst lengi vel ekkert spennandi við þann tíma, en svo líður tíminn og maður fer að sjá æskuna í stærra samhengi. Þegar ég loksins fór að gefa þessum áratug gaum leið ekki á löngu þar til ég rakst á hljómplötuna Oh Mercy. Þessi plata greip mig strax og ég hlustaði á hana vikum saman og fann að þarna var eitthvað. Þetta var týnda púslið sem mig vantaði til að skilja Time Out of Mind.
Umslagið á Time Out of Mind hefur lengi verið mér hugleikið. Á því er frekar óskýr mynd af Bob Dylan þar sem hann situr inni í hljóðveri með gamlan Gibson L-00 gítar frá þriðja eða fjórða áratugnum. Gítarinn virkar alltaf á mig sem eins konar táknmynd fyrir gömlu Ameríku og þjóðlagaarfinn. Það er eitthvað við yfirbragð Dylans á þessari mynd, eins og hann þurfi ekki að sanna neitt heldur leyfi sér einfaldlega að vera.

En til að öðlast fullan skilning þurfti ég að fara aftur til ársins 1984. Þá fór Bob Dylan í hljómleikaferð um Evrópu með stórt band, meðal annars með Mick Taylor á gítar, fyrrverandi meðlim Rolling Stones. Dylan var að fylgja eftir plötunni Infidels sem hafði komið út árið áður og er ekkert sérstök plata í mínum huga. Þrír síðustu tónleikar ferðarinnar voru hljóðritaðir og úr varð platan Real Live, sem kom út síðar sama ár og er reyndar ágætis heimild um þennan tíma.
Lokatónleikar ferðarinnar fóru fram 8. júlí við Slane Castle á Írlandi. Einn tónleikagestanna var hinn 24 ára Bono, söngvari U2, sem hafði verið fenginn til að taka viðtal við Bob Dylan fyrir írska tónlistartímaritið Hot Press. Dylan hafði lengi verið tregur til blaðaviðtala og því ákvað Hot Press að prófa aðra leið og sendi Bono til hans í stað blaðamanns. Viðtalið varð óhefðbundið og snerist meðal annars um lagasmíðar, upptökutækni og framleiðendur. Þar kom fram sameiginleg hugmynd þeirra um að hefðbundin hljóðver gætu tekið lífið úr tónlistinni og að rýmið sjálft skipti máli fyrir hljóminn.
Það var greinilega eitthvað sem heillaði Dylan við þennan unga mann því hann bauð Bono að stíga með sér á svið um kvöldið. Þegar til kom kunni Bono ekki textann að Blowin’ in the Wind og spann því bara eitthvað á staðnum, sem Dylan virtist kunna vel að meta. Bono sagði síðar að hann hefði beðið Dylan afsökunar og fengið svarið: „It’s okay, I make them up all the time.“ Þetta var upphaf að kynnum sem áttu eftir að verða nánari með árunum.
Það er sagt frá því í bókinni Chronicles, Volume One að Bono hafi eitt kvöld komið í heimsókn til Dylans. Dylan hafði þá nýverið samið nokkra texta sem hann vissi ekki enn hvað yrði úr. Þegar Bono spurði hvort hann ætlaði ekki að taka þetta upp sagðist hann ekki vera viss. Það hefði ekki gengið vel að hljóðrita plötur undanfarin ár og láta þær ganga upp eins og hann vildi. Bono sagðist þá vita um rétta manninn, Daniel Lanois, sem væri hugmyndaríkur og kynni að nálgast lögin á réttan hátt. Bono kom þeim í samband, en þeir létu þar við sitja að sinni og ákváðu að hittast ef Dylan ætti leið um New Orleans, þar sem Lanois var þá við vinnu.

Sumarið 1988 hófst svo Never Ending Tour, tónleikaferð sem upphaflega var hugsuð sem þriggja ára verkefni en hélt áfram nánast samfleytt þar til Covid-19 stöðvaði allt tónleikahald. Never Ending Tour var aldrei formlegt heiti, en festist við tónleikaferðir Dylans sem virtust engan enda ætla að taka. Nafnið má rekja til viðtals sem blaðamaðurinn Adrian Deevoy tók við Dylan árið 1989. Deevoy spurði hann út í það að hann virtist fara úr einni tónleikaferð beint í þá næstu og Dylan svaraði: „Oh, it’s all the same tour.“ Deevoy spurði þá: „It’s the Never Ending Tour?“ og Dylan svaraði: „Yeah, yeah.“ Þannig festist heitið við tónleikahald hans.
Fyrsti leggur Never Ending Tour endaði í október 1988, en 25. september hafði Dylan spilað í New Orleans. Hann lét ekki sitja við orðin tóm og bauð Daniel Lanois og upptökumanninum Mark Howard á tónleikana. Dylan var þekktur fyrir að yfirgefa tónleikasvæðið um leið og tónleikum lauk. Til eru skemmtilegar sögur af því að hann hafi látið hljómsveitina spila áfram eftir að hann gekk af sviði og sjálfur verið kominn upp í bíl og farinn þegar bandið sló síðustu tónana.
Þetta septemberkvöld var þó öðruvísi. Dylan bauð Lanois og Howard til sín í tónleikarútuna eftir tónleikana og spurði þá nánar út í verkefnið sem þeir voru að vinna að í New Orleans. Þeir sögðust vera að taka upp plötu með Neville Brothers, meðal annars ábreiðu af With God on Our Side, sem Dylan hafði gefið út árið 1964. Dylan varð forvitinn og þeir buðu honum að koma í hljóðverið daginn eftir og hlusta. Platan sem þeir voru að vinna að var Yellow Moon og á henni voru tvö lög eftir Dylan, With God on Our Side og The Ballad of Hollis Brown, bæði sungin af Aaron Neville.

Daniel Lanois var þegar orðinn eftirsóttur upptökustjóri og hafði meðal annars unnið með Brian Eno, Peter Gabriel og U2. Mark Howard var hins vegar ungur kanadískur upptökumaður sem hafði kynnst Lanois nokkrum árum áður í Grant Avenue-hljóðverinu í Hamilton. Howard hafði mest starfað við tónleikaupptökur og var vanur að koma fyrir upptökubúnaði við ólíkar aðstæður. Lanois fékk hann því með sér til New Orleans til að setja upp stúdíó fyrir upptökur á plötu Neville Brothers.
Daniel Lanois var farinn að vinna eftir þeirri hugmyndafræði að taka tónlistarmennina út úr hefðbundnum hljóðverum, nálgun sem Mark Howard þróaði síðar áfram með honum. Þeim fannst umgjörðin þar setja fólki of miklar skorður og gera því erfitt að skapa rétta stemningu. Þess í stað leigðu þeir gömul hús eða byggingar þar sem arkitektúrinn og andrúmsloftið gátu mótað vinnuna og þannig skilað sér í upptökuna.
Þeir sneru því hinu hefðbundna vinnuferli við. Í stað þess að láta flytjandann laga sig að hljóðverinu löguðu þeir rýmið og uppsetningu upptökubúnaðarins að flytjandanum. Þannig vildu þeir fella niður múra milli tækni og tónlistar með því að hafa upptökumanninn og allan búnaðinn inni í sama rými og flytjendurna og mynda þannig eina heild. Þannig urðu samskiptin nánari og auðveldara var að halda flutningnum lifandi og eðlilegum. Rýmið sjálft var ekki lengur aðeins hugsað sem umgjörð, heldur sem hluti af hljóðheiminum og upplifun allra sem tóku þátt í ferlinu.
Við upptökur á plötu Neville-bræðranna, Yellow Moon, höfðu Lanois og Howard tekið á leigu gamalt fjölbýlishús við St. Charles Avenue, ekki langt frá þar sem bræðurnir bjuggu. Hugmyndin var að bræðurnir gætu unnið í sínu eigin umhverfi og þannig væri hægt að fanga þá á sem náttúrulegastan hátt. Þeir komu sér allir fyrir í húsinu. Upptökur fóru fram á einni hæð en Lanois, Howard og Neville-bræðurnir dvöldu á öðrum hæðum. Húsið varð því að eins konar samfélagi á meðan upptökum stóð. Menn voru ekki að mæta í hljóðver heldur bjuggu og lifðu í því andrúmslofti sem platan var gerð í.
Það var inn í þennan heim sem Bob Dylan kom þegar hann heimsótti Daniel Lanois og Mark Howard daginn eftir tónleikana og fékk að heyra upptöku af Aaron Neville syngja With God on Our Side. Daniel Lanois sagði síðar að Dylan hefði verið mjög hrifinn af því sem hann heyrði og meðal annars sagt: „That sounds like a record.“ Í framhaldinu var ákveðið að þeir myndu vinna saman að næstu plötu Dylans.
Dylan hafði verið á nokkuð skrítnum stað sem listamaður árin á undan en var byrjaður að finna eitthvað nýtt á tónleikum. Hann var hins vegar ekki búinn að finna jafn skýra leið inn í hljóðverið aftur, þótt fyrsti leggur Never Ending Tour hefði gefið honum einhvern kraft. Hann segir frá því í Chronicles að hann hafi upplifað eitthvað breytast. Allt í einu fóru að flæða frá honum textar, hugmyndir og lög.
Það var því með nýtt efni í farteskinu sem Dylan mætti til Lanois og Howard í byrjun mars 1989. Þeir höfðu þá fundið gamalt hús við Soniat Street sem hentaði vel þeirri vinnuaðferð sem þeir höfðu þróað. Dylan kom með handskrifaða texta í stílabók, kassagítar og munnhörpu. Til þess að átta sig á því hvað þeir væru að vinna með settist Dylan einfaldlega í stofuna, Howard stillti upp hljóðnemum og Lanois setti upptökuna af stað. Hugmyndin með þessum fyrstu upptökum var einfaldlega að skrá hvaða efni væri til staðar áður en farið væri að vinna frekar með það.
Eitt af þessum lögum sem þeir hljóðrituðu þarna í upphafi var Most of the Time. Þó upptakan hafi aðeins verið hugsuð sem demó er hljómurinn alveg stórkostlegur og þarna finnst mér heyrast vel hversu góður upptökumaður Mark Howard er. Hann lagði mikið upp úr því að fanga ekki aðeins röddina og gítarinn heldur einnig hvernig hljómurinn barst um rýmið. Fyrir vikið varð útkoman mjög náin, eins og Dylan sé við hlið manns þegar maður hlustar á lagið.
Textinn fjallar um mann sem er að mestu búinn að jafna sig á sambandsslitum. Röddin er skýr og stjórnuð en full af trega og það er eins og kvíðinn fylli munnhörpuna. Þó textinn segi að sögumaðurinn hafi það bara fínt (most of the time) skynja ég örvæntingu í óreglulegum gítarálslættinum og smám saman áttar maður sig á því að hann er ekki að segja satt. Hann er alls ekki búinn að jafna sig, sama hversu oft hann reynir að sannfæra sjálfan sig um annað. Flutningurinn er svo lifandi að það er eins og lagið opinberist fyrir Dylan um leið og hann flytur það.
Þegar kom að hljóðversvinnu var Dylan vanur að vinna hratt og hafa hljómsveit sem hann gat treyst á. Hraðinn fólst meðal annars í því að hafa góða hljóðfæraleikara sem komu með fjölbreyttar hugmyndir sem Dylan gat gripið á lofti og unnið áfram með. Nálgun Daniel Lanois var að brjóta þetta upp og þess vegna vildi hann ekki fá aðra hljóðfæraleikara strax til liðs við þá. Hann vildi gera allt sem hann gat til þess að fanga sjálfan Bob Dylan, ómengaðan af utanaðkomandi áhrifum.
Þeir sátu því mest tveir saman með sitthvorn gítarinn og Roland TR-808 trommuheila til að móta lögin og finna réttu stefnuna. Dylan var ekki vanur svona vinnulagi og það reyndi mikið á að hann væri sjálfur skapandi og frjór. Það gat tekið tíma og reynt á þolinmæðina. Fyrir vikið veitti hann mótspyrnu, var líklega ekki sannfærður um þessa nálgun og því fór fljótlega að myndast spenna á milli þeirra.
Mark Howard hefur sagt frá því að eitt sinn hafi soðið upp úr á milli þeirra með þeim afleiðingum að Lanois tók upp dobro-gítar og barði honum í stúdíómónitor. Howard sagðist þá hafa flýtt sér út og ekki ætlað að verða vitni að því ef þeir dræpu hvorn annan. Hann heyrði svo garðhliðið skellast og Dylan var farinn, en daginn eftir var hann mættur aftur eins og ekkert hefði í skorist.
Spennan einskorðaðist þó ekki við samband Dylans og Lanois. Fyrstu vikurnar yrti Dylan varla á Mark Howard, eins og hann væri ekki á staðnum, og gerði honum jafnvel lífið leitt með því að snúa sér í aðra átt en Mark hafði stillt upp hljóðnemunum eða færa sig um set. Hvort þetta var með ráðum gert eða ekki skal ósagt látið, en að minnsta kosti skorti samskipti. Mark Howard var hins vegar mikill mótorhjólamaður og var með nokkur Harley-Davidson-hjól við húsið. Bob Dylan er einnig þekktur fyrir áhuga sinn á mótorhjólum og það kom að því að hann spurði hvort Mark gæti útvegað sér flott Harley-Davidson-hjól, sem Mark gerði.
Þegar hjólið kom fóru þeir að rúnta um nágrennið og Mark sýndi Dylan helstu leiðir. Fljótlega fór Dylan svo að fara einn á hverjum degi. Við þetta myndaðist ný tenging sem kom tónlistinni ekkert við heldur snerist einfaldlega um tvo menn sem deildu áhuga á mótorhjólum og frelsinu sem þeim fylgir. Dylan hafði þá verið heimsþekktur í meira en 25 ár og það hlýtur að hafa verið ómetanlegt fyrir hann að geta keyrt um og skoðað sig um í New Orleans óáreittur. Þegar hann var einn á hjólinu gafst honum líklega einstakt tækifæri til að hugsa og endurnærast. Í Chronicles segir hann frá því að það hafi verið í einni af þessum ferðum sem hann áttaði sig á því hvað Daniel Lanois og Mark Howard voru raunverulega að gera og hvað vakti fyrir þeim með þessum vinnubrögðum.

Þrátt fyrir árekstrana virðist Lanois hafa verið knúinn áfram af mikilli ástríðu fyrir starfi sínu og þeirri sannfæringu að honum bæri að ná fram því besta sem bjó í listamanninum. Dylan virtist á sama tíma vilja gefa af sér það sem hann átti. Vandinn var fyrst og fremst sá að þeir þekktust ekki enn nógu vel og traustið hafði ekki myndast. Þegar þessi skilningur fór að myndast varð einnig auðveldara fyrir Dylan að gefa sig að vinnuaðferðum þeirra. Ein aðferðin sem þeir beittu var að færa Dylan nær hljóðnemanum. Hann hafði lengi sungið hátt í kapp við hljómsveit, en þarna fengu þeir hann til að syngja lægra og vera nær. Þetta skilaði sér í meiri nánd og röddin varð skýrari og tærari.
Þegar ég hlusta á plötuna og þær hjátökur sem hafa verið gefnar út, ásamt því að skoða þær fáu myndir sem teknar voru, skynja ég ekki goðsögnina Bob Dylan. Ég skynja frekar ósköp venjulegan mann í hettupeysu sem keyrir mótorhjól og er ákveðinn og einbeittur. Þetta er maður sem vill byrja upp á nýtt og er tilbúinn að leggja allt annað til hliðar á meðan. Það hafa allir séð svona fólk, knúið áfram af einhverjum innri hvata til að skilja við það liðna og halda áfram eftir nýjum farvegi. Þetta er fólk sem hefur gengið í gegnum skilnað, misst vinnuna eða upplifað aðrar hindranir í lífinu og tekið ákvörðun um að gefast ekki upp heldur halda áfram. Því fólki fylgir einhver eldmóður og ástríða fyrir því að skapa sér nýja tilveru. Þannig finnst mér Bob Dylan vera á þessum tímapunkti, laus af stallinum og birtast manni eins og hver annar maður.
mám saman fór því að skapast traust og ákveðin rútína. Vinnan hófst aldrei fyrr en eftir myrkur og hann virðist hafa fundið einhvern mátt í nóttinni. Fyrir vikið fór hann að vantreysta allri vinnu sem átti sér stað að degi til. Nóttin í New Orleans var heit og rök og hann vildi fanga þá tilfinningu. Einmitt í því hugarástandi samdi hann lagið Man in the Long Black Coat. Þar finnst mér platan einmitt öðlast ákveðna dýpt, hljómurinn og áferðin urðu þannig hluti af þeirri stemningu sem einkenndi upptökurnar. Á sama tíma fór líka að koma betur í ljós hvað Dylan var sjálfur að glíma við í textunum.

Það er vissulega hægt að lesa textana og boðskap þeirra með ýmsum hætti, en ég sé þetta alltaf fyrir mér sem ákveðið ferðalag sem hefst með Political World. Þar beinir hann kastljósinu frá sjálfum sér og að heiminum sem honum finnst vera að fyllast alls kyns meinum, þar sem mannleg gildi víkja fyrir græðgi og eiginhagsmunum. Þetta er veröld sem við viljum ekki en erum föst í og í því felast sorg og vonbrigði sem leiða okkur áfram í næsta lag, Where Teardrops Fall. Það finnst mér fjalla um löngunina til að komast burt frá núverandi ástandi, eða „far away from it all“ eins og segir í textanum. Þetta lýsir því þegar við fellum niður allar varnir, stöndum varnarlaus og erum tilbúin að byrja upp á nýtt. Það er samt ekki svo auðvelt, því allt er brotið, bæði veröldin og við, eins og fjallað er um í laginu Everything Is Broken.
Svo kemur lagið Ring Them Bells sem er eins konar viðbragð við þessu ástandi. Þar er boðskapurinn að við verðum að kveða okkur hljóðs með því að hringja bjöllum, láta þannig vita og veita mótspyrnu. Fyrir mér snýst þetta ekki um lausn heldur sjálfsbjargarviðleitni, að standa með sjálfum sér og segja frá því sem brýst um innra með manni. Lagið er líka merkilegt í samhengi við upptökuferlið. Hér gengur upp það sem áður hafði skapað spennu. Dylan er settur í miðjuna með píanó og rödd, á meðan Daniel Lanois spilar á gítar og Malcolm Burn á hljómborð. Dylan segir frá því í Chronicles að lagið hafi verið tekið upp nánast eins og hann fann það. Þarna virðist vinnuaðferð Lanois loksins hafa fallið að Dylan í stað þess að vinna gegn honum.
Þegar tilveran fer úr skorðum og lítið breytist þrátt fyrir mótspyrnu getur vaknað löngun til að leita annað. Þannig birtist mér konan í Man in the Long Black Coat, sem virðist lifa venjulegu lífi á yfirborðinu en ákveður að yfirgefa manninn sinn og fara burt með ókunnugum manni. Glíma mannsins við sjálfan sig er ekki alltaf sýnileg á yfirborðinu en getur leitt til órökréttra ákvarðana, eins og að halda út í óvissuna með ókunnugum manni. Þannig finnst mér þetta lag fyrst og fremst fjalla um mannlega veikleika og glímuna við sjálfan sig.

Síðan verður ákveðinn viðsnúningur í Most of the Time. Þar er áfram fjallað um lífið sem var, en nú frá sjónarhorni manns sem er að vinna sig út úr sambandsslitum. Kastljósið færist inn á við og að því hvernig það er að takast á við tilveruna þegar lífið heldur áfram. Þá þarf að vinna úr tilfinningum gagnvart því liðna á sama tíma og ferðin áfram er hafin.
Þessi viðsnúningur verður enn skýrari í What Good Am I? Þar er ekki lengur horft á heiminn heldur beinist kastljósið inn á við og beinlínis spurt hvort maður sé eitthvað betri sjálfur. Lagið er eins konar sjálfsuppgjör hjá manni sem gerir kröfu til sjálfs síns um að halda áfram og gefast ekki upp. Hann sér að veröldin er breytt, en hvað hefur hann sjálfur lagt á vogarskálarnar? Er hann eitthvað betri en aðrir? Maðurinn er fullur af hégóma og veikleikum sem leiða til sjálfsblekkingar, eins og sungið er um næst í Disease of Conceit.
Loks kemur lykillag í mínum huga, What Was It You Wanted? Ég túlka það á þann veg að verið sé að syngja til sjálfs sín og í raun spyrja sjálfan sig þeirrar grundvallarspurningar, hvað er það sem ég vil? Eins og svo oft dregur Dylan upp myndir og dæmi, en spurningin stendur alltaf eftir, What was it you wanted? Þarna er hann líklega farinn að átta sig á því að veröldin er ekki að breytast, heldur hann sjálfur. Ef hann er ekki lengur sami maður og hann var, hver er hann þá og hvar fær hann svarið við því? Þessi spurning finnst mér hanga áfram yfir næsta lagi.
Hið hugljúfa lokalag plötunnar, Shooting Star, er eins og ákveðið uppgjör við lögin á undan. Dylan segir frá því að lagið hafi komið til hans eftir mótorhjólaferð með eiginkonu sinni. Þarna er aftur horft um öxl og undirtónninn snýst um tækifærin sem hafa gengið manni úr greipum, en lífið heldur samt áfram. „I saw a shooting star tonight, slip away, tomorrow will be another day.“ Þetta vekur áleitnar spurningar um hvað varð um mig og þig og hver ég er núna samanborið við þann sem ég var. Fyrir mér er þetta ákveðið þroskaferli því á ákveðnum tímapunkti er hægt að horfa til baka og sjá betur hvað fór fram hjá manni.
Oh Mercy er mjög heilstætt verk og titill plötunnar fær alveg nýja merkingu eftir að hafa hlustað á lögin. Þetta er ekki ákall um miskunn heldur frekar beiðni um smá svigrúm til að átta sig. Dylan var 47 ára gamall þegar hann gerði þessa plötu og var því ekki lengur ungur en heldur ekki orðinn gamall. Hann var á þeim stað að fortíðin var orðin nógu löng til að mynda heild en framtíðin var enn opin. Árin á undan hafði hann ekki fundið listrænum hvötum sínum alveg réttan farveg og því er ekki óeðlilegt að hann staldri við. Ímynd hans var enn tengd goðsögninni frá sjötta áratugnum en hann var ekki lengur sá maður. Hann þurfti því að læra að vera hann sjálfur án þess að afneita fortíðinni. Þannig er platan kannski um mann sem fer frá því að sanna sig yfir í að þekkja sig.
Þar kom Daniel Lanois inn sem réttur maður á réttum tíma. Honum tókst að draga fram Bob Dylan eins og hann var á þessum tímapunkti, ekki eins og hann hafði verið. En það þýddi ekki að leitinni væri lokið. Á næstu plötu, Under Red Sky, sem kom út 1990, nær hann engan veginn sama flugi og er greinilega ekki enn búinn að finna sjálfan sig aftur í hljóðverinu. Hins vegar hafði hann fundið rétta taktinn varðandi tónleika sem verða eins konar lifandi vinnustaður þar sem lögin breytast frá kvöldi til kvölds og þar finnur sköpunarkrafturinn farveg.

Bob Dylan er hins vegar maður sem vill vera á stöðugri hreyfingu og sífellt leitandi. Hann reynir að elta eigið innsæi til þess að færast áfram og virðist vera alveg óhræddur við það. Á næstu tveimur plötum, Good as I Been to You og World Gone Wrong, fer hann einn í ferðalag með kassagítarinn og tekur upp ábreiður af gömlum þjóðlögum og blús. Hann er því að sökkva sér í menningararfinn sem hann sjálfur hafði sprottið úr. Þar finnst mér hann fara aftur að kjarnanum í tónlistinni, ekki til þess að endurtaka fortíðina heldur til að kanna hvað úr henni tilheyrði honum enn.
Þegar Time Out of Mind kom svo út árið 1997 var því eitthvað búið að gerast. Maðurinn sem ég sé á umslaginu með gamla Gibson-gítarinn er enn leitandi listamaður en hann er búinn að finna sig varðandi sköpun og tónlist. Hann veit úr hverju hann er gerður og þó hárið sé farið að grána og röddin orðin hrjúf þá reynir hann ekki að fela það. Þannig verður Time Out of Mind upphaf að nýjum kafla hjá Bob Dylan, en einfaldur hlustandi eins og ég þurfti að þekkja forsöguna til þess að geta skilið framvinduna.
Heimildir:
Bob Dylan. Chronicles: Volume One.
Mark Howard og Chris Howard. Listen Up! Recording Music with Bob Dylan, Neil Young, U2, R.E.M., The Tragically Hip, Red Hot Chili Peppers, Tom Waits…
Daniel Lanois. Soul Mining: A Musical Life.
Bono. Viðtal við Bob Dylan fyrir Hot Press, Slane Castle, 8. júlí 1984.
Bono í The Joe Rogan Experience, þáttur 2330, 30. maí 2025.
CBC Music. Viðtal við Daniel Lanois um gerð Oh Mercy.
Joker and the Thief. Samantekt á frásögnum Daniel Lanois um samstarfið við Bob Dylan og gerð Oh Mercy.
Viðtöl og hlaðvörp með Mark Howard um upptökurnar á Oh Mercy.
Wikipedia. Ýmsar greinar um Oh Mercy, einstök lög plötunnar og fleira.