Hugleiðingar um hitt og þetta

Svínaskarð

Ég fór fyrst á Móskarðshnjúka með pabba þegar ég var unglingur. Hann leiddi mig á ótal fjöll, kenndi mér nöfn á helstu kennileitum og hvernig ætti að lesa landslagið. Hann las landakort eins og bók og kunni nöfn á hverri þúfu, að mér fannst. Móskarðshnjúkar eru reyndar auðþekkjanlegir, ljósir og sjást langt að, eins og framhald af Esjunni til austurs. Á milli þeirra og Esjunnar eru Laufaskörð, sem líkjast tvöföldu vaffi þegar horft er á fjallið og blasa til dæmis við manni þegar keyrt er austur Langholtsveg. Þar er einstigi með keðju til að styðja sig við og hægt er að setjast klofvega á fjallið með einn fót dinglandi niður í Kjós og hinn niður í Mosfellssveit.

Eitt af því sem pabbi benti mér á var Svínaskarð, sem skilur að Móskarðshnjúka og Skálafell. Ég tók strax eftir vegslóðanum sem lá um skarðið og hugsaði með mér að þarna væri hægt að hjóla. Pabba fannst það nú ekki áhugavert og benti mér á að þetta væri aðeins jeppaslóði eða reiðgata. Hann var hvorki jeppakall né hestamaður og svo óþolandi jarðbundinn og laus við alla óþarfa ævintýraþrá, þótt hann hefði gaman af því að ganga á fjöll. Það var samt alltaf eitthvað í mér sem kallaði á meira og þess vegna gleymdi ég ekki þessum slóða, en síðan liðu næstum þrjátíu ár.

Snemma í sumar fór ég að finna til í fætinum og varð að hætta að hlaupa. Fyrst áttaði ég mig ekki á hversu slæm meiðslin voru og hélt í þá von að þetta myndi bara lagast. Ég ákvað að hjóla á meðan til að hvíla fótinn, en eins og alltaf gat ég ekki látið mér nægja að hjóla bara í Elliðaárdalnum eða Heiðmörk og fór að horfa í kringum mig. Þá rifjaðist upp fyrir mér slóðinn um Svínaskarð sem mig hafði svo lengi langað að hjóla og ég fór að sjá fyrir mér hvernig ég gæti gert úr þessu hring. Ég taldi mig þekkja svæðið nokkuð vel, enda hafði ég farið um stóra hluta þess áður og lesið mikið um það.

Þetta var að sjálfsögðu skyndiákvörðun og ég lagði af stað seinnipart dags. Ég skildi bílinn eftir við brúna hjá Þverárkoti og hjólaði inn Þverárdalinn fram hjá sumarhúsunum. Mér fannst ég kominn í algjört draumaland, eins konar afdal sem gengur þarna upp að rótum Esjunnar, með Haukafjöllin á milli sín og Mosfellsheiðinnar. Eftir dalnum rennur Þverá, sem sameinast Leirvogsá, en úr skarðinu sjálfu kemur Skarðsá. Innan við sumarhúsin er vað og göngubrú og þar skammt frá stendur gamall skátaskáli sem heitir Þristur. Slóðinn liggur yfir ána og áfram upp skarðið, en gönguleiðin á Móskarðshnjúka fylgir honum fyrst um sinn en beygir svo til vinstri upp fjallið.

Á leiðinni upp Svínaskarð

Vegurinn var furðu fínn til að byrja með og vel hægt að hjóla hann, en eftir því sem skarðið þrengdist jókst brattinn. Það var svo sem ekkert til að kvarta yfir, allavega ekki strax, en að lokum gafst ég upp og þurfti að teyma hjólið. Það var ekki alveg það sem ég hafði hugsað mér, en það var magnað að fara þarna upp með Móskarðshnjúkana beint fyrir ofan sig og Skálafellið til hægri. Ég fann að þetta var alvöru fjallvegur og fékk á tilfinninguna að ég væri kominn í afskekktan afdal, alveg þangað til ég leit við og sá borgina blasa við.

Af slóðanum að dæma virtust fáir fara þarna um og þótt margir leggi leið sína á Móskarðshnjúka held ég að fáir nenni að elta þennan veg og sleppa tindinum. Ég hafði einhvern veginn átt von á að sjá ummerki eftir jeppaumferð eða buggy bíla, en það var ekkert slíkt að sjá og erfitt að ímynda sér að þarna hefði einu sinni verið alfaraleið, sérstaklega þegar ég hugsaði til vetrarins. Þótt friðsælt væri í góðviðrinu átti ég auðvelt með að sjá fyrir mér hvernig gil og dældir gætu fyllst af snjó og vindurinn þrýst sér á milli tindanna. Á aðfangadag árið 1900 varð fimmtán ára gamall strákur úti á þessari leið, en hann var á heimleið frá Reykjavík að Hækingsdal í Kjós. Hann fannst síðar í skafli í háskarðinu og þegar ég staldraði við vörðuna uppi í skarðinu og virti fyrir mér umhverfið velti ég því fyrir mér hvort hann hefði náð alla leið þangað.

Það var gott að vera kominn upp og þurfa ekki að teyma hjólið lengra, því fóturinn þoldi ekki svona mikið labb. Nú var bara eftir að bruna niður í Kjósina. Ég hafði séð á korti að það voru s-beyjur á leiðinni niður og því mátti búast við ágætis halla, en það fældi mig ekki frá. Þvert á móti sá ég fyrir mér að það yrði bara gaman að bruna þarna niður og svífa í gegnum beygjurnar, enda væri ég loksins kominn með þyngdaraflið í lið með mér og gæti hvílt fótinn á meðan.

Ég settist aftur á hjólið tilbúinn að bruna niður brekkuna en var rétt kominn af stað þegar ég varð heldur betur hissa. Tveir erlendir ferðamenn komu á móti mér teymandi fullhlaðin ferðahjól. Það var ekki beint örvænting í svip þeirra en greinilegur efi, eins og þau væru ekki viss um hvort þau væru á réttri leið. Það hvarflaði því að mér að þau væru villt, en það er varla hægt að villast í heiðskýru sumarveðri með veg fyrir framan sig. Ég var búinn að ná upp smá ferð og tímdi ekki að stoppa svo ég lét nægja að kasta á þau kveðju um leið og ég rúllaði fram hjá, standandi á hjólinu. Þau kinkuðu kolli og mér sýndist glott færast yfir andlit þeirra eins og þau væru að velta fyrir sér hvort ég ætlaði í alvöru að hjóla þarna niður.

Innan skamms var ég kominn á fleygiferð en vegurinn varð sífellt grýttari og áður en ég vissi af átti ég fullt í fangi með að stýra og halda mér á hjólinu. Ég sá að ég myndi annaðhvort drepa mig, eyðileggja hjólið eða bæði ef ég héldi svona áfram og varð að hægja verulega á mér. Fljótlega var ég farinn að skrönglast yfir grjótið á gönguhraða en gafst að lokum upp og þurfti að hálfbera hjólið niður langan kafla. Þetta var ekkert eðlilega bratt og ekkert eðlilega grýtt og nú skildi ég fólkið sem ég hafði mætt. Það var nógu slæmt að drösla hjóli þarna niður, hvað þá að þurfa að draga fullhlaðið hjól alla leið upp. Og guð minn góður hvað löppin sem ég hafði ætlað að hvíla á niðurleiðinni var orðin aum.

Hér hafði ég hugsað mér að gönna niður

Á meðan ég dröslaði hjólinu niður gat ég ekki ímyndað mér að nokkur bíll kæmist þennan veg, sama hversu mikill jeppi það væri, en samt hafði verið farið þarna yfir á fólksbíl um 1930. Ég skildi ekki hvernig menn höfðu farið að því, enda átti ég fullt í fangi með reiðhjólið. Ég var því orðinn feginn þegar ég komst loksins niður fyrir mesta brattann í Svínadal og gat farið að hjóla almennilega aftur.

Þar tók við skemmtilegur kafli og ég þaut niður dalinn, sem var miklu lengri en ég hafði átt von á, og naut vindsins í andlitinu og ilmsins af lyngi og sól. Fyrir miðjum dalnum tók ég allt í einu eftir ref sem hljóp á harðaspretti samhliða mér, en hann hafði væntanlega komið auga á mig löngu áður en ég kom auga á hann. Síðan var þægilegt rúll út dalinn og niður að fyrstu sumarhúsunum í Kjós, þar sem greinilega var meiri umferð um slóðann.

Ég hjólaði í gegnum sumarhúsabyggðina og upp Kjósarskarð í átt að Þingvallavegi, fram hjá Fellsenda og afleggjaranum að Stíflisdal. Skammt þar fyrir sunnan lá slóði þvert á veginn og þar beygði ég inn á Hálsaveg niður í Stardal. Hinum megin sá ég gömlu Þingvallaleiðina hlykkjast áfram um Stíflisdal og Selkot eftir Selkotsvegi, allt aðra og eldri leið en Þingvallaveginn sem við ökum í dag. Gömlu göturnar liggja þarna enn og eftir þeim er hægt að halda alla leið til Þingvalla.

Við Hálsaveg, Fellsendi í baksýn

Þótt ég væri búinn að lesa um allar þessar leiðir og skoða þær margsinnis á korti fannst mér allt í einu eitthvað svo magnað að vera sjálfur kominn inn í þetta gamla leiðakerfi sem liggur þarna enn í landslaginu. Hálsavegur var hluti af Stardalsleið til Þingvalla og leiðir úr Kjós tengdust henni líka, en Svínaskarðið sem ég var nýkominn yfir, hafði verið hluti af aðalleiðinni til Vestur- og Norðurlands. Þessar götur höfðu tengt bæi og byggðir löngu áður en vegirnir sem við ökum í dag voru lagðir.

Svona snemma á sumrin er bjart allan sólarhringinn, en það var samt komið kvöld þegar ég kom að Stardal. Mér fannst bæjarstæðið ótrúlega flott þarna undir Stardalshnjúknum, með fjöllin að baki og Leirvogsána neðan við túnin. Stardalur tilheyrði gamla Kjalarneshreppnum og á þessum slóðum voru áður sel frá Esjubergi og mörgum öðrum bæjum. Vestur á Kjalarnesi lá líka gömul þjóðleið frá Kollafirði um Kleifar utan við Mógilsá og áfram út með Esjunni fast við fjallsræturnar þar sem mýrlendið tekur við af skriðunum. Enn má rekja gömlu reiðgöturnar frá Esjubergi langleiðina að Blikdalsá, svo þarna leynast víða leiðir sem maður hugsar lítið um þegar ekið er eftir þjóðveginum.

Ég hélt áfram frá Stardal niður með Leirvogsá, með ána á vinstri hönd og klettahnjúkana yfir mér hægra megin. Þarna eru Stardalshnjúkar og síðan Þríhnúkar og Haukafjöll, sérkennilegt og fallegt landslag með klettaveggjum, stuðlabergi og grónum lautum á milli. Á þessum slóðum eru líka tóftir eyðibýlisins Sámsstaða svo þarna leynast bæði gömul bæjarstæði og sel við leiðina. Það var mjög friðsælt þarna í kvöldkyrrðinni og ég naut þess að hjóla niður með ánni og virða fyrir mér landslagið eftir allt klöngrið.

Vaðið yfir Leirvogsá milli Stardals og Skeggjastaða

Ég fór yfir Leirvogsá á vaði og hélt áfram niður að Skeggjastöðum með ána á hægri hönd þar sem hún tók að renna í djúpi gljúfri. Mér fannst þetta kjörin leið fyrir stutta og skemmtilega ferð frá Skeggjastöðum að Tröllafossi og áfram að Stardal. Það þarf ekki alltaf að fara yfir heilt fjallaskarð til að komast í skemmtilegan hjóla- eða göngutúr og þessi kafli hefði verið ferðarinnar virði einn og sér. Sjálfur hafði ég ætlað að stoppa við Tröllafoss en fór óvart fram hjá honum svo ég á hann enn eftir þótt ég sé búinn að hjóla leiðina.

Frá Skeggjastöðum hjólaði ég aftur að bílnum við Þverárkot og lokaði þar hringnum. Ég var loksins búinn að fara slóðann sem ég hafði séð með pabba fyrir næstum þrjátíu árum og samt strax farinn að hugsa um framhaldið. Næst langaði mig að fylgja gömlu leiðinni áfram um Stíflisdal og Selkot alla leið yfir til Þingvalla. Vonandi þarf ég ekki að bíða í önnur þrjátíu ár eftir því.

Fleiri skrif

Allir pistlar →

Allir molar →